Mjög há gildi mæld á Reyðarfirði

Mjög há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) hafa mælst í kvöld á Reyðarfirði eða um 4.000 µg/​m3. Þetta eru hæstu gildi sem mælst hafa síðan byrjað var að mæla SO2 frá eldstöðinni í Holuhrauni á Reyðarfirði. Gera má ráð fyrir að svipuð mengun sé á fleiri stöðum á Austfjörðum, þó svo að mælingarnar hafi komið fram á mælinum á Reyðarfirði. Íbúar eru hvattir til að halda sig innan dyra meðan styrkurinn mælist þetta hár, loka gluggum og hækka hita í húsum. SMS smáskilaboð almannavarna hafa verið send frá Neyðarlínunni til íbúa á svæðinu til vekja athygli á að viðbrögðum við mengun vegna brennisteinsmengunarinnar. Hægt er að nálgast upplýsingar á vefsíðu Umhverfisstofnunar um viðbrögð við brennisteinsmengun http://ust.is/einstaklingar/loftgaedi/so2#Tab1

Gera má ráð fyrir að styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) fari eftir veðurskilyrðum hverju sinni og geti hækkað og lækkað eftir atvikum.

Nánari upplýsingar á vefsíðu almannavarna http://avd.is/?p=505 og http://avd.is/?p=470

avdlogo09-150x151