Breytt umfangi aðgangsstýrða svæðisins norðan Vatnajökuls

Ríkislögreglustjórinn, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, lögreglustjórinn á Austurlandi og lögreglustjórinn á Suðurlandi hafa tekið ákvörðun (með tilvísun í 23.gr. í lögum 82/2008 um almannavarnir) um að breyta umfangi aðgangsstýrða svæðisins norðan Vatnajökuls.  Ákvörðunin er tekin í samráði við Veðurstofu Íslands, Vatnajökulsþjóðgarð, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni.

Í lok janúar skilaði Veðurstofa Íslands nýju hættumati vegna gasdreifingar frá eldstöðinni í Holuhrauni.  Forsendur fyrir nýju hættumati voru að dregið hafði úr eldgosinu frá því í október, árstíðabundin veðurskilyrði og gasmælingar sem gerðar eru reglulega við eldstöðvarnar.  Líkan var keyrt miðað við veðurupplýsingar síðustu 10 ára fyrir mismunandi árstíðir og uppgefinn styrk af SO2.  Hættumatið sem nú tekur gildi er miðað við veðurskilyrði fyrir febrúar til maí og verður því endurskoðað fyrir sumaraðstæður.

Gasmengun frá eldstöðinni getur enn verið mikil utan við lokunarsvæðið og eru því ytri mörk hættusvæðisins óbreytt frá fyrri ákvörðun.  Enn er í gildi hættumat vegna flóða og öskufalls.  Þeir sem hyggja á ferðalög innan hættusvæðisins að lokunarsvæðinu eru hvattir til þess að sýna ítrustu varfærni og vera með viðeigangi viðvörunar- og hlífðarbúnað.  Auk þess er mikilvægt að kynna sér spár um dreifingu gass á vefsíðu Veðurstofunnar.

Líkön og mælingar frá því í vetur sýna að mikil mengun getur legið yfir Vatnajökul frá Flæðum, yfir Kverkfjöll og suður fyrir Norðlingalægð.  Því mælast ofangreindir aðilar til þess að fólk fari ekki á gönguskíðum frá Grímsfjalli að Kverkfjöllum eða austur yfir jökulinn.

Unnið er að sérstöku hættumati vegna jökulhlaupa í Jökulsárgljúfrum og er því lokun þar enn í gildi.  Auk þess er almennt hættumat vegna jarðhræringa í Bárðabungu og eldgossins í Holuhrauni í sífelldri endurskoðun og getur kallað á breytingar með litlum fyrirvara.

Hér fyrir neðan má sjá kort af aðgangsstýrða svæðinu. Kortið má einnig finna hér á síðunni ásamt fleiri kortum og þeim reglum sem gilda um aðgang að svæðinu. 

Um lokunarsvæðið gilda ákveðnar reglur og afmarkast af neðangreindum hnitum:

Númer

Breidd

Lengd

1

64,796

17,310

2

64,853

17,017

3

65,085

16,769

4

65,109

16,325

5

65,616

16,261

6

65,534

16,009

7

65,174

15,909

8

64,682

16,753

Bardarbunga_lokad_haetta_2015_02_13-Islenska_prentutg