Gasmengun að mælast á Húsavík og í Mývatnssveit og nágrenni

Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni er nú að berast til Húsavíkur, Mývatnssveitar og nærsveita. Loftgæðamælar við Mývatn eru að sýna 800 – 1200 µg/m3 eða 0,3 – 0,4 ppm og eru loftgæði því slæm fyrir viðkvæma. Upplýsingar um áhrif SO2 á heilsu og viðbrögð er hægt að nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar og vefsíðu almannavarna. Í dag (miðvikudag) og á morgun (fimmtudag) má búast við gasmengun frá gosstöðvunum víða á norðanverðu landinu, frá Jökuldalsheiði fyrir austan, vestur á Hvammsfjörð.

eldgos_mengun_22