influensa.is   

Vefsíðan www.influensa.is  er samstarfsverkefni sóttvarnalæknis, almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnunar og Landbúnaðarstofnunar.   Markmið þessa verkefnis er að safna saman og vista á einum stað upplýsingar fyrir almenning um árlega inflúensu, heimsfaraldur inflúensu og fugla- og svínainflúensu í mönnum og dýrum.

Sóttvarnalæknir við embætti landlæknis ber ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn heilbrigðisráðherra. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir bera ábyrgð á virkjun áætlunar um heimsfaraldur inflúensu á Íslandi.

Á vefsíðunni www.influensa.is er hægt að nálgast upplýsingar um A(H1N1) nýja inflúensuveiru sem hefur breiðst út og lagst á menn. Veiran er með erfðaefni frá svína- fugla og mannainflúensu A veirum, en þessi samsetning hefur aldrei áður sést.

Fólk smitast af inflúensu A (H1N1) veiru á sama hátt og í árlegri inflúensu. Hún fer frá manni til manns með dropum sem myndast við hósta og hnerra frá sýktum manni. Óbeint smit verður þegar dropar og vessar frá nefi og hálsi manns sem er sýktur berast á hendur annarra og yfir á yfirborð, sem aðrir sneta og þeir bera síðan með höndum í símhúðir munns og nefs.

Hægt er að nálgast upplýsingar um inflúensuna á ensku á eftirfarandi vefsíðum

http://www.cdc.gov/h1n1flu/qa.htm
http://www.ecdc.europa.eu/

http://www.who.int  

 

 

 


Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is