ELDGOS Í EYJAFJALLAJÖKLI   
22.4.2010

Fréttatilkynning 22.apríl kl. 06:30

Samhæfingarstöð Almannavarna óskar landsmönnum öllum gleðilegs sumars.

Að sögn vettvangsstjórnar á Hvolsvelli hefur nóttin verið mjög róleg. Rétt fyrir kl. 01:00 í nótt varð örlítil aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti og barst nokkur krapi með en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar í ánni.  Frá eldstöðvunum má þó enn finna markvissan takt umbrotanna. Vetur og sumar frusu saman undir Eyjafjöllum og er nú mikill snjór og hálka á veginum austan við Markarfljót. Má í dag búast við öskufalli í grennd við eldstöðina og vestur af henni.

Í tilefni sumardagsins fyrsta verður í dag opið hús og veisla í Heimalandi frá kl. 11-17.
Verða veitingar í boði SS, Emmess ís og Ölgerðarinnar. Rangárvallasýsludeild Rauða Krossins sér um að halda utan um samkomuna líkt og undanfarna daga í Heimalandi

Í dag verða kl. 08:00 áframhaldandi upplýsingafundir sérfræðinga í upplýsingamiðstöðvunum í Skógarhlíð og í Hvoli á Hvolsvelli.  Þóranna Pálsdóttir veðurfræðingur og Steinunn S. Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur verða á fundinum í Skógarhlíð en fulltrúi Jarðvísindastofnunar HÍ, verður á fundinum á Hvoli.

 

Til baka

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is