Yfir 30 eldgos hafa gosið hér á landi á 20. og 21. öld. Gjóska frá eldgosi getur gert mönnum lífið leitt og því mikilvægt að vernda fjölskylduna, heimilið og vinnuna gegn skaðlegum áhrifum þessa hvimleiða fylgifiski eldgosa. Árið 1973 varð gífurlegt gjóskufall í Vestmannaeyjum með alvarlegum afleiðingum fyrir eyjabúa. Aska safnast upp í skafla eins og snjór. Húseignir og bílar fóru sérstaklega illa þegar gjóskan hlóðst upp á þök og smaug inn vélar bíla og tækja. Nýfallin gjóska getur bæði verið gróf og kornótt með hrjúfri áferð eða fínn salli og lyktar af brennisteini. Mikið gjóskufall getur valdið myrkri um hábjartan dag, slegið út rafmagn, mengað vatn, haft eldingar í för með sér, stíflað niðurföll og haft slæm áhrif á dýr, gróður og tæki. Gjóska getur valdið skemmdum á lungum ungbarna auk þess að auka erfiðleika þeirra sem eiga við öndunarörðugleika að etja. Einnig getur hún valdið óþægindum í augum. Gjóska er flughál sem gerir ökumönnum og gangandi vegfarendum erfitt fyrir. Til langs tíma getur blaut gjóska valdið tæringu á málmum. Gjóska getur valdið skemmdum og truflunum fjarri eldfjallinu sjálfu Áhrif á rafmagns- rafeinda og tölvukerfi. Alls kyns vandamál geta orðið í kjölfar gjóskufalls og er þar helst að nefna rafmagns, rafeinda- og tölvukerfi. Mikilvægt er að halda viðkvæmum kerfum frá ryki og gjóskufalli, halda leiðurum hreinum og varast að nudda og bursta gjósku af viðkvæmum vélum og tækjum. Helstu vandamál sem upp hafa komið í gjóskufalli er að þessi kerfi hafa verið með óvarða rofa, útsláttur verður á rafmagni vegna útfellingar á blautri gjósku og hlutir úr kopar og járnblendi geta eyðilagst vegna tæringar. Einnig hafa viftureimar gefið sig. Hætta er á að geisladiskar geti eyðilagst, þannig að ágætt getur reynst að setja þá í loftþéttar umbúðir.
Þegar gjóskufall vofir yfir. - hafið til taks á heimili og vinnustað: -rykgrímur og jafnvel hlífðargleraugu -álpappír og plastfilmu (til að vernda tölvu- og rafeindatæki) -útvarp og vasaljós með auka rafhlöðum -skóflur, kústa og ryksugu -hafa niðursoðin eða þurrmat til nokkurra daga ásamt hreinu vatni og lyfjum -sjúkrakassa með nauðsynlegum neyðarbúnaði Bíllinn -forðist eftir fremsta megni að keyra mikið í öskufalli, askan eyðileggur bílinn - keyrið varlega vegna hálku og til að varna þess að ryk þyrlist upp og hafið kveikt á bílljósum. Hafið til taks -rykgrímur og hlífðargleraugu -loft- og olíusíur, rúðuþurrkur og vökva -vatnshelda yfirbreiðslu og dráttartaug -gsm síma með hleðslumöguleika í bílnum Í gjóskufalli. -reynið eftir fremsta megni að vera innandyra, hugið sérstaklega að börnum og dýrum -lokið hurðum og gluggum -reynið að koma í veg fyrir trekk, notið þéttilista, límband eða rök handklæði -fylgist með tilkynningum í útvarpi -reynið að hafa rafmagnsnotkun í lágmarki og verjið viðkvæm tæki fyrir ryki -forðist að nota tölvur og breiðið yfir hljómflutningstæki, þurrkara og þvottavélar -fylgist með þaki, frárennslisrörum og rennum -tryggið öryggi og fóður fyrir húsdýr og gæludýr |