Áhrif ösku á gróður   

Landgræðsla ríkisins fylgist grannt með framvindu gróðurs á svæðum sem urðu fyrir miklu öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. Liður í viðbragðsáætlun er áburðardreifing og uppgræðsla á svæðum kringum jökulinn. Það er gert til að bæta beitiland, draga úr öskufoki og til að efla gróður. Landgræðslan telur að búast megi við gjóskufoki á svæði sem telur 360.000 - 400.000 hektarar eða nærri 4% af flatarmáli Íslands. Þessu svæði er skipt upp í 12 minni aðgerðarsvæði og þeim forgangsraðað eftir alvarleika.

Anna María Ágústsdóttir hjá Landgræðslu ríkisins hefur tekið saman upplýsingar um áhrif ösku á gróður,  sem hægt er að nálgast á heimasíðu Landgræðslunnar 

 


Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is