Fréttir   
18.1.2010

Viðbragðsáætlanir heilbrigðisstofnana

Þann 15. janúar var haldinn vinnufundur vegna samræmdra viðbragðsáætlana heilbrigðisstofnana í landinu.  Til fundarins mættu ritstjórar viðbragðsáætlana frá  heilbrigðisstofnunum landsins og báru saman bækur sínar.



Í upphafi fundar var boðið upp á fræðslu um fjarskiptakerfið TETRA sem heilbrigðisstofnanir hafa fest kaup á fyrir starfsemi sína. Fyrirlesarar voru  Þröstur Brynjólfsson frá TETRA,  Rögnvaldur Ólafsson frá almannavarnadeild og Ármann Höskuldsson yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.   Það kom fram á fundinum að þekking innan heilbrigðisþjónustunnar er takmörkuð á þessu nýja kerfi og finna þarf leiðir til að bæta úr því.

Eftir fræðsluna um TETRA flutti Þórólfur Guðnason yfirlæknir hjá Sóttvarnalækni erindi um bólusetningu vegna H1N1,  vandamál  tengd framkvæmd og árangur bólusetningarinnar.     Tímanum eftir hádegi var síðan varið til þess að fara ofan í saumana á viðbragðsáætlunum og leita bestu leiða til að gera einfaldar og virkar  áætlanir.

Áætlað er að allar heilbrigðisstofnanir hafi lokið gerð sinna viðbragðsáætlana fyrir 1. maí á þessu ári og  þann 12. nóvember er á döfinni að halda samskiptaæfingu allra heilbrigðisstofnana með þátttöku Samhæfingarstöðvarinnar í Skógarhlíð. 

 

Til baka

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is