Fréttir   
6.3.2010

Heldur minni skjálfavirkni var í nótt

Jarðskjálftavirknin undir Eyjafjallajökli heldur áfram, en þó hefur verið heldur rólegra seinustu klukkutímana. Enn mælast margir jarðskjálftar á hverjum klukkutíma og frá miðnætti hafa mælst 2 skjálftar að stærð um 2,8,   annar var um miðnættið hinn rétt fyrir klukkan fjögur.

Fylgst er náið með framvindunni í samvinnu við jarðvísindamenn.

Til baka

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is