|
|
 |
| |
Fréttir |
|
 |
|
| 7.3.2010 |
Dregið hefur úr skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli |
Skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli hefur minnkað síðustu tvo sólarhringa. Skjálftum hefur fækkað og enginn þeirra hefur verið stór. Almannavarnadeildin fylgist náið með framvindunni í samvinnu við jarðvísindamenn. Um leið og talið er að hætta sé liðin hjá verður óvissustigi almannavarna aflétt í samráði við lögreglustjóra umdæmisins og vísindamenn.
|
| Til baka |
|
|
|
|