Fréttir   
7.7.2010

Nýr verkefnastjóri fyrir þjónustumiðstöð vegna eldgoss

Þann 1. júlí hóf Sigrún Árnadóttir störf hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjórans sem verkefnastjóri fyrir þjónustumiðstöð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.  Sigrún tekur við af Vagni Kristjánssyni og Guðmundi Inga Ingasyni, sem voru verkefnastjórar þjónustumiðstöðvanna á Heimalandi og í Vík.  Vagni og Guðmundi eru færðar þakkir fyrir þeirra störf við rekstur þjónustumiðstöðvanna.

Fyrst um sinn mun Sigrún starfa á skrifstofu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð en jafnframt mun hún starfa að hluta ýmist á Kirkjubæjarklaustri, í Vík, Heimalandi eða á Hvolsvelli.  Meginverkefni hennar er að sinna eftirmálum eldgossins í Eyjafjallajökli sem snúa að sveitarfélögum, íbúum og uppbyggingarstarfi. 
Þjónustan er opin öllum þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum og þurfa aðstoð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.  Sigrún verður tengiliður ráðuneyta og undirstofnanna þeirra við sveitarfélög og almenning. 

Sigrún Árnadóttir starfaði um langt árabil hjá Rauða krossi Íslands, lengst af sem framkvæmdastjóri. Síðustu ár hefur hún verið í framhaldsnámi og rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki.  Sigrún er boðin velkomin til starfa. Hægt er að hafa  samband við Sigrúnu í síma 861 7683 eða í gegnum netfangið sigruna@rls.is.

 

Til baka

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is