Fréttir   
9.7.2010

Hár gufumökkur frá Eyjafjallajökli
Gufumökkur frá Eyjafjallajökli hefur stigið í yfir 3 km hæð í morgun. Veður er kyrrt og bjart og gott útsýni til jökulsins. Mökkurinn er hvítur og enga ösku að sjá í honum. Enginn gosórói er í jöklinum og skjálftavirkni lítil. Samkvæmt jarðvísindamönnum, sem  hafa verið að störfum í gær og í morgun á jöklinum er þetta hita- og gufuútstreymi auk þess sem brennisteinsvetni (SO2 ) kemur upp eins og undanfarið. Gufur stíga einnig upp af hrauninu, en ekki hefur bæst í það. Aska hefur hrunið úr gígbarminum vestanverðum og ofan í gíginn og myndar þar aurkeilu. Jarðvísindamenn munu starfa áfram á jöklinum um helgina. Almannavarnir og Veðurstofan fylgjast einnig með framvindunni.
Til baka

Skúlagata 21 | 101 Reykjavík | S:444 2500 | Fax: 562 2665 |
Netfang:almannavarnir@rls.is