Áfram lokað um Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur ákveðið að áfram verði lokað um Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg á Vestfjörðum. Upplýsingar um lokanirnar hafa verið sendar til íbúa á svæðinu með SMS skilaboðum  í farsíma. Staðan verður metin að nýju í birtingu í fyrramálið. Frekari upplýsingar má nalgast í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777