Áframhaldandi óvissustig vegna Öræfajökuls

Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands, Veðurstofunnar og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra flugu yfir Öræfajökul í dag. Farið var á þyrlu Landhelgisgæslunnar og flugvél Isavia auk þess voru vísindamenn við árnar og söfnuðu vatni.  Gerðar voru mælingar á gasi og rafleiðni vatns í ám, vatnssýnum safnað og yfirborðshæð jökulsins mæld í öskju Öræfajökuls.

Sigketilinn sem greint var frá í gær var m.a. mældur og er hann um 1 km í þvermál og 15-20 m djúpur. Vatn úr katlinum rennur í Kvíá.  Á meðan svo er eru ekki taldar miklar líkur á umtalsverðu jökulhlaupi.

Ljóst er að verulegur jarðhiti er kominn upp í öskju Öræfajökuls en ekki nein merki um að eldgos sé að hefjast.  Verulegt óvissa er um framhald þeirrar atburðarásar sem nú er í gangi.  Fylgjast þarf náið með henni og auka eftirlit og rannsóknir. Á Veðurstofunni er sólarhringsvakt þar sem fylgst er með jarðskjálftum og óróa.

Næstu daga þarf að vinna að fullu úr gögnum frá ferðum dagsins. Óvissustig almannavarna verður áfram í gildi meðan sú vinna fer fram. Litakóði Öræfajökuls vegna flugs verður áfram gulur.