Dregur úr úrkomu í kvöld og nótt

Skil hafa verið kyrrstæð yfir landinu síðustu tvo sólarhringa og fært okkur stöðuga rigningu langt sunnan úr hafi. Skilin eru nú á leið vestur út af landinu og því dregur smám saman úr úrkomu sunnan- og vestanlands og styttir að mestu upp í kvöld og nótt.

Samkvæmt Veðurstofunni náðu ár á Vesturlandi hámarki snemma í morgun. Mjög mikið vatn er í ám við Mýrdalsjökul og sunnanverðan Vatnajökul eins og t.d. í  Krossá, Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvísl og Djúpá. Enn er mikil rigning á svæðinu og styttir ekki upp fyrr en í kvöld. Rennsli er enn að vaxa í Hvítá og Ölfusá og er mikið vatn í öllum þverám Hvítár og mjög mikið í Soginu en rennsli þar fór í 250 m³/s og hefur ekki verið jafn mikið síðan 1999.

Rennsli hefur ekki náð hámarki í Hvítá við Fremstaver svo líklega nær Ölfusá við Selfoss ekki hámarki fyrr en á föstudagskvöld eða laugardagsmorgun. Líklegt er að hámarksrennsli Ölfusár við Selfoss geti farið yfir 1.000 m³/s en það gerðist síðast í febrúar 2013. Mjög mikið rennsli hefur verið í ám á höfuðborgarsvæðinu. Rennsli er farið að minnka nema í Elliðaánum þar sem það er enn að vaxa. Hámarksrennsli Korpu fór í 32 m³/s sem er mesta flóð í Korpu síðan í febrúar 1994.

Vegna mikilla rigninga og aurbleytu hefur veginum um Arnavatnsheiði verið  lokað fyrir allri umferð frá Surtshelli að Arnarvatni stóra, einnig er allur akstur bannaður á veginum inn í Þórsmörk.