Flugslysaæfing í Grímsey

Nú fyrir hádegið hófst flugslysaæfing í Grímsey þar sem æfð eru viðbrögð við flugslysi. Markmiðið með flugslysaæfingum er að láta reyna á samvinnu allra viðbragðseininga á því svæði sem flugslys verða. Aðstæður í Grímsey eru þannig að þar er einungis hluti hinna hefðbundnu viðbragðsaðila eins og lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, Rauði krossinn og heilbrigðisstarfsmenn. Sömu einstaklingar eru að hluta til í slökkviliði og björgunarsveit.
Verði stóráfall í Grímsey er gert ráð fyrir að aðstoð berist frá nærliggjandi svæðum en þangað til sú aðstoð berst, reynir á heimamenn.
Við undirbúning á æfingunni  var boðið upp á fræðslu í formi fyrirlestra og verklegra æfinga og var lögð áhersla á að sem flestir gætu nýtt sér þá fræðslu. Farið var yfir skipulag á slysavettvangi, umönnun og bráðaflokkun slasaðra, aðkomu að flugslysi, slökkvistarf og björgun. Að fræðslunni komu ráðgjafar frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Isavia, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Landspítala, slökkviliði Akureyrar og fleiri. Margir tóku þátt í fræðslunni sem var í boði og var áhugi heimamanna mikill.

Æfingin hófst með því að send voru SMS textaskilaboð í alla farsíma í Grímsey og þannig fengu íbúar tilkynningu um æfinguna og að flugvél hefði brotlent við enda flugvallarins.

Þó svo að aðalmarkmið æfingarinnar hafi verið flugslys, þá nýtist fræðslan og undirbúningurinn þeim sem taka þátt í æfingunni við hvaða slys sem er.

Hægt verður að fylgjast með æfingunni síðar í dag  á Facebook-síðu almannavarnadeildarinna