Þrumuveður

Þegar þrumuveður gengur yfir þá á maður að leita skjóls í húsi ef kostur er. Ef það er ekki kostur á að vera innandyra á maður að: Forðast vatn, hæðir í landslagi og berangur.
Forðast alla málmhluti svo sem, raflínur, girðingar, vélar, tæki o.s.frv. Halda sig fjarri stórum trjám.
Leita skjóls, ef unnt er, í stærri byggingum eða yfirbyggðu ökutæki úr málmi. Hafið glugga lokaða.
Ef grunur leikur á að eldingu slái niður nærri ykkur og þið náið ekki að komast í skjól, ættuð þið að: Krjúpa niður á kné, beygja sig fram og styðjið höndum á hnén. Leggist ekki flöt.

Innanhúss Þar sem eldingu getur slegið niður í rafleiðandi lagnir utanhúss og leitt þær inn í hús þá skal: Forðist að nota vatn úr vatnsleiðslum (hvort sem er við uppvask, handþvott, klósett, sturtu eða bað). Haldið ykkur fjarri útidyrum, gluggum og lagnakerfum. Forðast skal að nota tæki sem eru í sambandi við rafmagn. Ef farsími er notaður þá varist að hafa hann í sambandi við hleðslu hvort sem er í bifreið eða innan húss.. Takið öll rafmagnstæki s.s. tölvur, rafmagnsverkfæri, ísskáp og sjónvarpstæki úr sambandi frá straumgjafa og loftneti. Notið inniloftnet sé þess kostur. Munið einnig að að aftengja brynningartæki, mjaltarkerfi og rafmagnsgirðinar þar sem það á við.