Íbúafundir í Fjarðabyggð vegna eldgossins í Holuhrauni

Þriðjudaginn 3. febrúar verða almennir upplýsingafundir í Fjarðabyggð um jarðhræringarnar í Bárðabungu og eldgosið í Holuhrauni í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, en Austurland er það landsvæði sem hvað oftast hefur þurft að glíma við SO2 gasmengunina frá Holuhrauni. Á fundunum munu fulltrúar frá Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun, Sóttvarnalækni og Jarðvísindastofnun fjalla um stöðuna á eldgosinu og fara yfir jarðhræringarnar í Bárðarbungu. Þá verða til umræðu áhrif og viðbrögð við gasmengun, hugsanlegt öskufall vegna eldgoss og viðbragðsáætlun á Austurlandi sem nú er í vinnslu
Fundirnir verða í Gunnskóla Reyðarfjarðar klukkan 17:00 og Nesskóla Neskaupstað klukkan 20:00
Íbúar eru hvattir til að koma á fundina og kynna sér þau mál, sem þar eru til umfjöllunar.