Mikið vatn í Bláfjallakvísl

Nú er mikið vatn í Bláfjallakvísl á Fjallabaksleið syðri. Bláfjallakvísl rennur frá norðurhluta Mýrdalsjökuls. Ferðafólk er hvatt til að gæta varúðar og sýna aðgát þar sem vöð yfir ána gætu verið varahugaverð. Við höfum haft fréttir af því að áin sé svo djúp að hún nái göngufólki jafnvel í mitti Ekki er ráðlegt að fólk sé að vaða ána eitt og sér. Rétt er að leita ráða hjá skálavörðum og landvörðum áður en lagt er í ána. Við þessar aðstæður er eingöngu fært fyrir öflugustu bíla yfir ána.

Currently the River Bláfjallakvísl to the north of Mýrdalsjökull (where road F261 meets road F210) is running deep. There is a lot of glacial water in the river and we have had news that the river is 70 to 110 cm deep at the ford over it. Hikers should take extraordinary care when crossing the river and should not do solo crossings. Hikers are advised not to cross the river without speaking to the wardens in the huts first. At depths over 50 cm rivers can not be crossed in unmodified 4X4 vehicles.