Óvissustigi aflétt vegna óveðurs

Ríkislögreglustjóri í samráði við alla lögreglustjóra landsins hefur aflétt óvissustigi vegna óveðurs, sem lýst var yfir að morgni 7. desember s.l.. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjórum landsins gekk aðgerðin í gær vel, þrátt fyrir mikinn veðurham víða. Aðgerðastjórnir voru virkjaðar í öllum umdæmum landsins og var viðbúnaður almennt til fyrirmyndar. Ákvörðun var tekin um lokun á vegum Ferðaþjónustan upplýsti erlenda ferðamenn um veðurspána og þeir virtu tilmæli almannavarna um að vera ekki á ferðinni. Sama má segja um allan almenning sem tók tilmælunum vel og var komin í hús tímanlega fyrir veðrið Þetta leiddi til þess að ekki sköpuðust vandræði á vegum úti þannig að björgunarsveitarmenn gátu einbeitt sér að því að bjarga verðmætum. Þetta sýnir að undirbúningur er mikilvægur þegar búast má við ofsaveðri eins og gekk yfir landið gær. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill þakka almenningi, viðbragðsaðilum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum sem leiddi til að allt gekk stórslysalaust fyrir sig.