Skjálftavirkni í Kötlu og viðvarandi brennisteinsmengun við Múlakvísl

Talsverð skjálftavirkni hefur verið í Kötluöskjunni síðan í júní, sem er hefðbundin sumarhegðun Kötlu. Þessu samfara hefur verið viðvarandi há rafleiðni í Múlakvísl í allt sumar. Einnig hafa borist margar tilkynningar um brennisteinslykt þaðan. Í kjölfarið á snarpri jarðskjálftahrinu í Kötluöskjunni þann 29. ágúst voru framkvæmdar gasmælingar við Múlakvísl í gær sem sýndu talsverðan styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) og brennisteinsvetnis (H2S). Um hádegi í dag var mælingin endurtekin og sýndi hún svipuð gildi. Gasmengun við jarðhitasvæði er ekki óalgeng og þar sem í Múlakvísl rennur vatn úr jarðhitakötlum í Kötlu er við því að búast að gas mælist við ána. Mælingarnar í gær og í dag sýna há gildi. Þess vegna er ekki mælt með að fólk dvelji lengi nálægt bökkum Múlakvíslar að svo stöddu. Ekki er vitað hvort þessi gasmengun tengist skjálftahrinunni. Verið er að setja upp nema til að mæla samfellt gas við ána svo hægt sé að fylgjast betur með þróuninni. Stærsti skjálftinn eftir meginhrinuna var af stærð 3,3 og varð síðdegis í gær. Ekki virðist vera áframhald á þessari skjálftavirkni og engin merki sjást um yfirvofandi eldgos. Katla er vel vöktuð allan sólarhringinn og mun Veðurstofan tilkynna um breytingar þegar þeirra verður vart.