Viðvörun: Spáð mikilli úrkomu næstu daga

Viðvörun vegna mikillar úrkomu og vatnavaxta frá
Veðurstofunni, þriðjudaginn 11. október kl. 11:30

Í nótt, á morgun og á fimmtudag er spáð er mikilli rigningu, meira en 100 mm á
sólahring, á svæðunum frá austanverðum Vatnajökli í austri, á öllu Suðaustur- og
Suðurlandi og norður með Vesturlandi að Ísafjarðardjúpi.
Ásamt úrkomunni er búist við miklu afrennsli af jöklum. Því má búast við miklum
vatnavöxtum í kjölfarið og þar sem mikið hefur rignt undanfarið er vatnsstaða víða há.
Flóðahætta getur því skapast mjög víða á svæðinu strax í nótt t.d. Á vatnasviði Hvítár
í Árnessýslum, við Ölfusá, og við Norðurá og Hvítá í Borgarfirði. Viðbúið er að
mikið vaxi í ám og lækjum og er fólki eindregið ráðlagt frá því að reyna að fara yfir
órbrúaðar ár og læki. Jafnframt má búast við aukinni hættu á skriðuföllum á þessum
slóðum.
Í þéttbýli mun mikið reyna á frárennslismannvirki og því mikilvægt að þau virki sem
skildi. Ráðlegt er að hreinsa vel frá niðurföllum og grípa til annarra aðgerða sem þurfa
þykir.
Langvarandi úrkomuatburðir sem þessir eru mjög sjaldgæfir og aðstæður og
afleiðingar því ókunnuglegar og jafnvel hættulegar.

vedur_harmonie_island_accum_total_runoff_2016101106_066

Mynd frá Veðurstofu Íslands af uppsafnaðri úrkomu fram á fimmtudag.