Viðvörun vegna storms á landinu á morgun

Við viljum vekja athygli á eftirfarandi spá Veðurstofunnar: Í dag (þriðjudag) er útlit fyrir tiltölulega rólegt veður, minnkandi norðaustlæga átt, 5-13 m/s síðdegis. Él eða dálítil snjókoma í flestum landshlutum. Frost 0 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.
Á morgun gengur í suðaustan og austan 20-28 m/s S- og V-lands með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu syðst. Hægari og úrkomulítið á N- og A-landi, en hvessir einnig þar síðdegis með ofankomu. Vægt frost á morgun, en hiti um eða yfir frostmarki S-til seinnipartinn.
Á miðvikudagskvöld og aðfaranótt fimmtudags dregur verulega úr vindi og úrkomu á landinu. Þó má reikna með að áfram verði hvasst og snjókoma á Vestfjörðum og gæti gengið í norðan ofsaveður þar á fimmtudagsmorgun með talsverðri ofankomu.

Fétt_Vedur

Rauðir og gulbrúnir litir tákna hættulegasta vindinn. Vindaspá þessi er reiknuð af Veðurstofu Íslands með Harmonie veðurlíkaninu. Spáin uppfærist fjórum sinnum á sólarhring og má alltaf fletta nýjustu kortunum á slóðinni:
http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/#teg=vindur
Athugasemdir veðurfræðings
Það má búast við samgöngutruflunum á landinu á morgun, fyrst um landið sunnan- og vestanvert.