Vorhret í kortunum næstu daga

slider_4

Eftir vorveður á landinu síðustu daga er gert ráð fyrir vorhreti með kulda og snjókomu norðan og austantil á landinu og hvassviðri undir Vatnajökli.  Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni eru hálkublettir, éljagangur eða snjóþekja  á vegum  víða á Norðausturlandi.

Hálka og éljagangur er á Fjarðarheiði og hálkublettir og él á Fagradal og Oddsskarði. Snjóþekja og él er á Vatnskarði eystra. Hálka er á Öxi. Snjóflóðaspá Veðurstofunnar bendir á að enn er nokkur hætta á snjóflóðum á norðanverðum Vestfjörðum, utanverðum Tröllaskaga og á Austfjörðum