Lokanir á vegum vegna óveðurs

Spáin frá því í gær virðist vera að ganga eftir. Vegagerðin hefur ákveðið að loka mjög mörgum vegaköflum í samráði við lögregluna og björgunarsveitir vegna óveðursins. Búið er að loka þjóðvegi 1 á Suðurlandi frá Hvolsvelli að Jökulsárlóni. Áætlað er að loka veginum milli Reyðarfjarðar og Hafnar klukkan 14:00.   Áætlað er að Hellisheiði, Þrengsli, Kjalarnes, Lyngdalsheiði, Mosfellsheiði og Suðurstrandavegur verði lokað klukkan 15:00 . Fleiri vegum verður lokað þegar líður á daginn og eru frekari upplýsingar á vefsíðu Vegagerðarinnar http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/frettir/nr/13266. Einnig er hægt að fylgjast með í www.textavarpinu.is.