Öryggi fólks sem dvelur eða starfar í Grindavík í lengri eða skemmri tíma er undirstaða allrar starfsemi í Grindavík. Nú liggja fyrir fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats, sem fela í sér mat á öryggi í Grindavík, samfellu skólahalds, velferð barna og öryggis húsnæðis m.t.t. búsetu.

Samanburður við önnur byggðarlög. Mörg byggðarlög á Íslandi búa við viðvarandi náttúruvá, sem í flestum tilvikum er árstíðabundin eða veðurfarstengd. Í þessum byggðarlögum fer fram vöktun á vánni og gefnar viðvaranir sé hún yfirvofandi, komið hefur verið upp varnarmannvirkjum af ýmsu tagi þar sem við á og viðbúnaður viðbragðsaðila hefur verið sniðinn að aðstæðum. Á þetta m.a. við um byggðarlög sem búa við vá vegna ofanflóða1, vatnsflóða af ýmsum toga2, eldgosa eða jarðskjálfta.

Aðstæður í Grindavík. Grindavík býr við yfirvofandi náttúrvá vegna jarðhræringa og eldgosa og er óvissustig almannavarna í gildi. Váin er ekki árstíða- eða veðurfarsbundin, heldur er viðvarandi allan sólarhringinn, allt árið. Frá upphafi atburðarásar haustið 2023 hefur gosið níu sinnum í nágrenni Grindavíkur og bærinn hefur verið rýmdur tíu sinnum á þessu tímabili. Síðasti atburðurinn var í júlí 2025 og óvissa ríkir um hvort eða hvenær til næsta atburðar komi. Enn mælist landris í Svartsengi og meiri kvika hefur nú safnast þar fyrir en áður hefur mælst. Mikill lærdómur hefur fengist af fyrri atburðum, sem nýtist í undirbúningi vegna næsta atburðar og viðbrögðum. Þó er ekki hægt að ganga út frá því að næsti atburður verði eins og fyrri atburðir, þar sem kvikumagn er orðið meira en áður hefur þekkst.

Niðurstaða þessa fyrsta áfanga endurskoðaðs áhættumats er þessi.

Aðstæður í Grindavík eru taldar sambærilegar og í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá. Þessi niðurstaða byggir á því að allar mikilvægar aðgerðir sem taldar eru forsendur:

  • daglegs öryggis í Grindavík í óvissuástandi,
  • öryggis við rýmingar og endurkomu til Grindavíkur,
  • samfellds skólahalds og velferðar barna í óvissuástandi og við rýmingu (til langs eða skamms tíma)
  • og öruggs húsnæðis í óvissuástandi og við endurkomu haldist virkar.

Megin skilyrði þess að tryggja virkni mikilvægra aðgerða, er skýr ábyrgð á framkvæmd og viðhaldi þeirra.

Þar sem váin er viðvarandi allt árið um kring í Grindavík er auk vöktunar-, varnar- og viðbragðsaðgerða, gripið til aukinna stuðningsaðgerða við Grindvíkinga, þá sérstaklega við börn og aðra viðkvæma einstaklinga. Þörf er á viðhaldi lifandi áhættumati, eins og því sem hér er lýst, til að fylgja því eftir að forsendur séu ávallt uppfylltar og vakta og bregðast við ýmsum utanaðkomandi merkjum um atburði aukið geta áhættu. Með þessum ráðstöfunum er talið að daglegt öryggi fólks sem dvelur eða starfar í Grindavík um lengri eða skemmri tíma sé ásættanlegt, sem og öryggi við rýmingar og endurkomu, og ekki síðra en í öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá. Talið er að unnt sé að viðhalda samfelldu skólahaldi og samfellu í stuðningi við börn á ásættanlegan hátt, sem og að öryggi húsnæðis sé ásættanlegt.

Virkar mikilvægar aðgerðir. Vegna várinnar og óvissunnar sem ríkir hefur verið gripið til umfangsmikilla vöktunar-, varnar- og viðbragðsaðgerða. Fyrir hendi er umfangsmikil vöktun várinnar og gefið er reglulega út hættumat. Viðvaranir eru gefnar ef vart verður merkja um kvikuhlaup. Byggðir hafa verið varnargarðar við Grindavík til að verja bæinn fyrir hraunrennsli og voru þeir endurbættir eftir síðasta atburð til að mæta þeim næsta. Unnið hefur verið að jarðkönnun á svæðinu í því skyni að leita uppi holrými eða sprungur sem ekki sjást á yfirborði. Unnið er að því að tryggja sem best daglegt öryggi fólks með viðgerðum á sprungum, lokun og vöktun hættusvæða, niðurrifi ónýtra húsa, upplýsingagjöf og öðrum undirbúningi allra sem dvelja í Grindavík fyrir rýmingu með skömmum fyrirvara. Umfang viðbragðs og viðbúnaðar viðbragðsaðila hefur verið sniðið að ástandinu og þörfum samfélagsins fyrir daglega vöktun hættusvæða og rýmingu. Lögð hefur verið rík áhersla á upplýsingagjöf til íbúa og þeirra sem til Grindavíkur koma til að þeir séu sér meðvitaðir um stöðuna.

Meðal þeirra mikilvægu forsendna sem þurfa ávallt að vera virkar með lifandi áhættumati eru:

  • Vöktun og viðvaranir Veðurstofu
  • Auknum verkefnum slökkviliðs Grindavíkur sinnt
  • Vöktun lokana og hættusvæða
  • Vöktun sprungubelta
  • Varnargarðar við Grindavík, bygging og viðhald
  • Greiðar flóttaleiðir
  • Virkt boðkerfi byggt á: SMS boð, viðvörunarflauta, húsganga.

Staða viðkvæmra einstaklinga. Hugað er sérstaklega að aðgerðum til að styðja við velferð barna og annarra viðkvæmra einstaklinga, með því að veit þeim upplýsingar við hæfi og tryggja daglegt öryggi bæði á og utan skólatíma með framboði íþrótta og frístundaiðkunar, styrkja þau til að búa við óvissuna og veita stuðning komi til rýmingar og endurkomu.

Langvarandi óvissa dregur úr áhættuvitund. Mikil áskorun er að halda vöku sinni við langvarandi óvissuaðstæður, þegar langt er frá síðasta atburði. Því er afar mikil áhersla lögð á fulla virkni mikilvægra aðgerða, upplýsingagjöf til almennings og lifandi áhættumat.

Vinnan. Vegna áhættumatsins og greiningar nauðsynlegra aðgerða kom saman þverfaglegur hópur hagsmunaaðila, sérfræðinga og óháðra ráðgjafa. Þar á meðal fulltrúar Grindavíkurbæjar, stjórnvalda, sérfræðingar í jarðfræði, sprunguviðgerðum, áhættustjórnun, málefnum barna og viðbrögðum. Unnið var í fjórum vinnuhópum að mismunandi málefnum. Verkefnisstjóri og vinnuhópar skiluðu gögnum um vinnuna sem fylgja þessu minnisblaði, sem og gagnalíkan til framkvæmdar áhættumats.

Framhaldið. Framhaldsvinna felur m.a. í sér að taka tillit til annarrar starfsemi í Grindavík og fullgera matið. Á meðan sú vinna fer fram verður aðferðafræðin yfirfarin og þróuð áfram og gagnalíkanið nýtt til þess að fylgjast með virkni forsendna og aðgerða, endurmeta við frávik og staðfesta reglulega hvort skilyrði ásættanlegrar áhættu í Grindavík séu uppfyllt.

Áhættumatið gildir fyrir byggð svæði í Grindavík innan varnargarða

Fylgiskjöl