Vafrakökur á almannavarnir.is

Við notum vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsvæða, til greiningar og til að beina auglýsingum til markhópa.

Hvað er vafrakaka? Vafrakaka er lítil skrá, gjarnan samsett af bókstöfum og tölustöfum, sem hleðst inn á tölvur þegar notendur fara inn á viss vefsvæði. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda. Nánari upplýsingar um vafrakökur er að finna á www.allaboutcookies.org.

Hverjar eru mismunandi gerðir vafrakaka? Setukökur gera vefsvæðum kleift að tengjast aðgerðum notanda meðan á vafrasetu stendur. Þær eru notaðar í margvíslegum tilgangi eins og til dæmis að muna hvað notandi hefur sett í „innkaupakörfu“ þegar verslað er á netinu, meðan hann er inni á vefsvæði. Setukökur má einnig nota í öryggisskyni. Setukökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á vefsvæði.

Fyrsta og þriðja aðila vafrakökur. Það ræðst af léni vefsvæðis sem gerir vafrakökuna hvort hún teljist fyrsta eða þriðja aðila vafrakaka. Fyrsta aðila vafrakökur eru í grundvallaratriðum vafrakökur sem verða til á því vefsvæði sem notandi heimsækir. Þriðja aðila vafrakökur eru þær sem verða til á öðru léni en notandi heimsækir. Þeir sem óttast vafrakökur og vilja aftengja þær geta gert það í vafrastillingum. Tekið skal fram að vefsvæðið okkar ábyrgist ekki nákvæmni eða öryggi efnisinnihalds á þriðja aðila vefsvæðum.

Vefgátt Almannavarna

Almannavarnir Ríkislögreglustjóra halda utan um gögn vegna áhættumats og stöðu almannavarnarstarfs í vefgátt sinni. Í áhættumati koma fram upplýsingar um tengilið viðkomandi sveitarfélags, fyrirtækis eða stofnunar ásamt upplýsingum um áhættuna og/eða stöðuna. Framangreindar tilkynningar eru varðveittar í 30 ár hjá Almannavörnum en eftir þann tíma er gögnum skilað til Þjóðskjalasafns Íslands í samræmi við skilaskyldu samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn.

Almannavörnum er heimilt að vinna framangreindar upplýsingar vegna þess að vinnslan er nauðsynleg vegna verkefnis sem unnið er í þágu almannahagsmuna eða við beitingu opinbers valds sem Almannavarnir fara með, sbr. e-lið 1. mgr. 6. gr. pvrg., sbr. 5. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018.

Persónuverndarstefna Ríkislögreglustjóra

Sjá nánar um persónuverndarstefnu Ríkislögreglustjóra á vef lögreglunnar.