Gas sem kemur upp með eldgosi getur verið hættulegt í miklu magni. Í minna magni getur það valdið óþægindum s.s. sviða í augum og öndunarfærum. Viðkvæmir einstaklingar, þ.á m. fólk með hjarta- og lungasjúkdóma og börn, ættu að vera sem minnst úti við þegar styrkur gass fer yfir hættumörk. Ungabörn ættu því ekki að sofa utandyra í slíkum aðstæðum.  

Almennar ráðleggingar vegna loftmengunar 

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk.
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr SO2 sem kemst niður í lungu.  
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni. 

Nánari upplýsingar um forvarnir og viðbrögð vegna eldgosa má finna hér á heimasíðu almannavarna.

https://www.facebook.com/Almannavarnir