Ráðstefna Almannavarna fyrir ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög og eigendur mikilvægra innviða, haldin 28. apríl á Hilton Reykjavík Nordica.

Fimmtudaginn 28. apríl verður haldin ráðstefna í tilefni af þemaviku Almannavarna um eigin viðbúnað. Tilgangur ráðstefnunnar er að kynna fyrir ráðuneytum, stofnunum, sveitarfélögum og eigendum mikilvægra innviða efni þemaviku Almannavarna sem og verkefni Almannavarna um greiningu á áhættu og áfallaþoli sem verið er að hrinda af stað.

Almannavarnir leggja áherslu á grundvallarreglur almannavarna, sviðsábyrgðar-, samkvæmnis-, grenndar- og samræmingarreglu og þar með á hlutverk ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga og þeirra einkafyrirtækja sem falla undir kröfur um almannavarnastarf samkvæmt lögum um almannavarnir.

Fjallað verður um þemaviku Almannavarna um eigin viðbúnað, leiðbeiningar og vefgátt Almannavarna vegna samræmdra greininga á áhættu og áfallaþoli, námskeið í samstarfi Iðunar fræðsluseturs og Almannavarna um notkun leiðbeiningaefnisins og vefgáttarinnar.

Skráning á ráðstefnuna er HÉR.

Aðgangur er ókeypis en sætafjöldi takmarkaður. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Hjördísi Guðmundsdóttur, samskiptastjóra Almannavarna (hg01@logreglan.is).

Við hlökkum til að sjá ykkur fimmtudaginn 28. apríl nk.

Dagskrá

13:00   Opnun ráðstefnunnar Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra
13:15    Áherslur Almannavarna Víðir Reynisson sviðstjóri og yfirlögregluþjónn Almannavarna
13:35    Þemavika Almannavarna Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna
13:45    3 dagar Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri Rauða krossins á Íslandi
13:55    Áhættustjórnun Ársæll Þorsteinsson, vélaverkfræðingur Mannvit
14:20    Verkefni Almannavarna
Greining á áhættu og áfallaþoli
Elísabet Pálmadóttir, verkefnastjóri Almannavarna
14:30    Kaffi  
14:50    Gagnsemi áhættugreininga Anna Málfríður Jónsdóttir, verkfræðingur, Lota ehf.
15:00    Almannavarnir í sveitarfélaginu Kjartan M. Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar
15:15    Almannavarnir og fjölskyldulífið Anna Björg Rúnarsdóttir, íbúi og foreldri í Grindavík
15:30    Námskeið í gerð greininga á áhættu og áfallaþoli Ólafur Ástgeirsson, sviðsstjóri bygginga- og mannvirkjasviðs hjá Iðuni fræðslusetri
15:40    Af hverju erum við að þessu? Hver er tilgangurinn? Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, fagstjóri endurreisnar hjá Almannavörnum
16:00    Samantekt á ráðstefnu og ráðstefnulok Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri