Almannavarnanefndir skulu annast gerð viðbragðsáætlana, svo og sjá um leiðbeiningar og almannafræðslu um hættu af ofanflóðum (snjóflóð og skriðuföll) í samvinnu við ríkislögreglustjóra og Veðurstofu Íslands.

Ef  ekki er mögulegt að rýma verður öryggi best tryggt með eftirtöldum aðgerðum þegar hætta er á snjóflóðum í byggð:

Forðist að vera utandyra
Gætið þess að vera sem minnst utandyra og alls ekki í fjalllendi þegar hætta er á snjóflóðum.

Dvalarstaður öryggisráðstafanir
Dveljið þeim megin í húsinu sem snýr undan fjallshlíðinni. Gluggum og millihurðum skal tryggilega lokað. Setjið hlera fyrir þá glugga sem að fjallinu snúa.

Kjallarar
Dveljið ekki í kjöllurum húsa nema þeir séu alveg niðurgrafnir og með steyptri loftplötu.

Stöðutilkynningar
Þeir sem búa eða dvelja afskekkt komi á síma- eða talstöðvasambandi við aðila utan hættusvæðis og láti heyra frá sér reglulega.

Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er íbúum skylt að rýma hús sín. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði fólks þar til því er heimilt að fara til síns heima. 

Ferðir í fjallendi – mat á hættu

Snjóflóðahætta stjórnast af þremur þáttum: landslagi, stöðugleika snjóþekjunnar og fólki. Flest hættuleg snjóflóð falla í hríðarveðri, þegar skafrenningur er viðvarandi og snjókoma er meiri en 20 cm. á sólarhring.

Veðurspá
Leggið ekki í fjallaferðir þegar spáð er stórhríð.  Fylgist vel með veðurspá og viðvörunum. Veðrabrigði sem hafa neikvæð áhrif á stöðugleika snjóþekju: áköf snjókoma, rigning, skafrenningur, snögg hlýnun og snjórinn hitnar

Hættutímabil
Snjóflóðahætta helst venjulega í 3 daga eftir að hríð slotar en enn lengur sé kalt í veðri. 

Snjóflóðahætta
Hætta er á ferðum þegar brestir heyrast í snjóþekju, sprungur sjást og snjóboltar eða spýjur falla.  Hugið að styrk snjóþekjunnar.  Þótt yfirborðið virðist traust geta veikburða lög leynst undir því.  Hlýindi, sólbráð eða regn á snjó geta valdið snjóflóðahættu.  Varist svæði þar sem snjór er svo votur að hann skvettist undan skíðum.

Ferðir í fjalllendi – Leiðarval

Forðist brattar brekkur
Forðist allar brekkur og gil með yfir 30° halla (bröttustu skíðabrekkur).

Varist að skera fjallshlíðar
Þegar ferðast er í fjalllendi þar sem hætta er á snjóflóði, á vélknúnum ökutækjum, snjóbrettum, skíðum og þess háttar, skal varast að skera þvert á fjallshlíðar og taka óþarfa beygjur þegar farið er niður varasamar hlíðar því það getur komið snjóflóði af stað. 

Öruggustu leiðirnar
Öruggustu gönguleiðirnar eru á hryggjum og áveðurs í hlíðum.  Þræðið svæði þar sem snjór er grynnstur og þið sjáið nibbur standa upp úr.  Ferðist eftir dalbotni frekar en í brekkukverkinni