Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna. Veðrið sem gekk yfir landið hefur nú gengið niður og aðstæður hafa batnað verulega. Þar sem engar veðurviðvaranir eru lengur í gildi, er ekki lengur talin þörf á auknu viðbúnaðarstigi.
Óvissustigið var sett á þann 2. júní vegna norðanáhlaups sem fylgdi hvössum vindhviðum, snjókomu og skafrenningi. Einnig var varað við vatnavöxtum og mögulegum skriðuföllum, sérstaklega á norðanverðu landinu.