Hér að neðan er nýtt áhættumat vegna jarðhræringa á Reykjanesi sem hefur nú tekið gildi.
FORSENDUR
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ fer nefndin með stjórn, skipulag og framkvæmd gerðar áhættumats í þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumatið er unnið af ÖRUGG verkfræðistofu ehf., fyrir framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Framkvæmdanefndin hefur fjallað um áhættumatið og samþykkt útgáfu þess.
SAMANTEKT ÁHÆTTUMATS
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir að kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni séu líklegasta sviðsmyndin þar sem kvikumagn heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi og hefur náð því magni kviku sem fór úr kvikuhólfinu þann 16. júlí. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum skilgreinir almannavarnarstig enn sem óvissustig, en margir þættir hafa áhrif á áhættumat svæðisins. Litið er til hættumats Veðurstofu Íslands frá 3. mars 2026, auk umfangs atvinnustarfsemi, samsetningu íbúa og fjölda á svæðinu ásamt umferðar ferðamanna á hættusvæðum, þeirra varna sem eru til staðar auk viðbragðsgetu. Frá 1. nóvember hefur verið sólarhrings vakt hjá slökkviliði Grindavíkur. Slökkviliðið sinnir eftirliti í Grindavík, en helstu atriði sem horft er til eru viðvera í bænum, ástand flóttaleiða, umferð, ástand girðinga og mannaferðir um afgirt svæði.
Mikil hætta er nú til staðar á Sundhnúksgígaröðinni, norðan Grindavíkur í hættumati Veðurstofu, og töluverð hætta teygir sig inn fyrir varnargarða Grindavíkur. Í Grindavík er heildar hættan metin töluverð.
Ferðafólk hefur gengið að nýlegu hrauni eftir ýmsum leiðum, sem geta verið varasamar. Merkingar, leiðbeiningar og aðrar stýringar minnka áhættuna að hluta, en óvissan um mögulega gosopnun eykur áhættuna verulega. Ekki er hægt að tryggja öryggi fólks á Vogaheiði, norðan við Grindavík, en þar er gamalt heræfingarsvæði sem notað var af bandaríska varnarliðinu á árunum 1952-1960. Þetta svæði er mengað af gömlum sprengjum og skotfæraleifum, sem enn geta verið virkar. Í umfjöllun hér á eftir er þetta svæði nefnt sprengjusvæði. Með góðu aðgengi að upplýsingum, afmörkuðum og merktum gönguleiðum, og stýringum við hraunið er áhættan mun lægri. Ferðaþjónustufyrirtæki bera ábyrgð á að upplýsa og skýra út þá áhættu sem er til staðar fyrir fólki á þeirra vegum.
Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.
Hér að neðan er hægt að sjá allt áhættumatið.