Hættustig Almannavarna vegna jarðhræringa á Sundhnúksgígjaröðinni.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að fara á hættustig Almannavarna þar sem líkur á eldgosi á Sundhnúksgígjaröðinni hefur aukist.

Á vef Veðurstofunnar kemur fram að kvikuhlaup sé hafið á Sundhnúksgígaröðinni. Þar kemur einnig fram að áköf jarðskjálftahrina stendur yfir í Sundhnúksgígaröðinni og benda gögn til þess að kvikuhlaups sé hafið og líklegt er að eldgos geti hafist í kjölfarið.

Jarðskjálftahrinan er staðsett á milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells, á svipuðum slóðum og sést hefur í upphafi kvikuhlaupa í fyrri atburðum.