Málþing um áfallaþol og viðbrögð í skólum

Verum viðbúin! er yfirskrift málþings sem KÍ og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra efna til 14. apríl. Fjallað verður um áfallaþol skólakerfisins, viðbrögð og forvarnir. Katrín Jakobsdóttir stýrir fundinum og eru allir velkomnir á Hilton Nordica.

Skráðu þig hér á málþingið

Markmið málþingsins er að skólastjórnendur, kennarar, ráðgjafar og skólafólk fái hagnýtar leiðbeiningar um hvernig við getum öll verið á vaktinni og vitum hvað gera skal ef alvarleg atvik eða óvænt hættuástand kemur upp.

Kennarasamband Íslands hefur látið sig öryggi starfsfólks og nemenda miklu varða. Síðustu ár hefur borið meira á óvæntum atvikum sem óneitanlega hafa kallað eftir frekari forvörnum og aðgerðum innan skólanna.

Á árunum 2020 til 2021 voru gerðar viðbragðsáætlanir fyrir framhaldsskóla landsins. Þar var meðal annars fjallað um viðbrögð við ógnunum, náttúruvá, smitsjúkdómum og efnaslysum. Skólameistarafélag Íslands og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra stóðu saman að þessari vinnu.

Með málþinginu nú vill Kennarasamband Íslands taka skref í að fylgja þessari vinnu eftir og þá með öll skólastigin í huga; leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla.

Þá eru uppi áform um að í kjölfar málþingsins verði skipulagðar æfingar þar sem farið verður í gegnum ýmsar sviðsmyndir. Með vitundarvakningu og skipulögðum æfingum er markmiðið að efla áfallaþol skólakerfisins til muna.

Málþingið er haldið í tengslum við níunda þing Kennarasambandsins sem hefst daginn eftir, eða þann 15. apríl.

Hvar og hvenær?

Staður: Hilton Nordica

Stund: Þriðjudagur 14. apríl, frá 13 til 16:30

Þingið er öllum opið. Við biðjum þau sem hyggjast sækja þingið að skrá sig svo hægt sé að áætla fjölda í sal.

Dagskrá 

  • 13:00  Málþingið sett – Katrín Jakobsdóttir málþingsstjóri
  • 13:10  Magnús Þór Jónsson flytur erindi
  • 13:20  Unnar Þór Bjarnason, varðstjóri samfélagslögreglu, flytur erindi
  • 13:30  Hvernig geta skólar búið sig undir alvarleg atvik og hver yrðu viðbrögð lögreglu? Karl Steinar Valsson, yfirmaður öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra og Ólafur Stefnir Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá sérsveit ríkislögreglustjóra
  • 14:00  Aukið öryggi í grunnskólum Reykjavíkurborgar – hvað erum við að gera? Og hvað er næst? Eyþór Víðisson, öryggisstjóri hjá Reykjavíkurborg
  • 14:20  Erindi flytur Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans. 
  • 14:35  Pallborðsumræður; Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, Hildur Ingvarsdóttir, Karl Steinar Valsson og Magnús  Þór Jónsson. 
  • 15:00  Samantekt – Katrín Jakobsdóttir
  • 15:10  Kaffihlé
  • 15:30  Borðavinna
  • 16:30  Málþingi slitið