Óvissustig Veðurstofu Íslands vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi eystra

Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi.

Samkvæmt Veðurstofu Íslands hafa íbúar í einu húsi á þekktu hættusvæði í dreifbýli við Siglufjörð verið beðnir um að dvelja ekki þar meðan óvissustig varir.

Talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga og hafa nokkur snjóflóð fallið, meðal annars á vegi. Í nótt féll mjög stórt snjóflóð úr Selskál skammt utan við Siglufjörð, yfir þjóðveginn og út í sjó, en veginum hafði verið lokað í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu.

Mikil úrkoma hefur mælst á annesjum á Tröllaskaga og hefur uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði og Ólafsfirði farið yfir 100 mm. Spáð er norðaustan hvassviðri og ofankomu á norðan- og norðvestanverðu landinu um og upp úr miðnætti í kvöld, á sunnudag og mánudag. Nánar á vef Veðurstofunnar.