Ráðstefna Almannavarna 16. október 2025

Árleg ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra verður haldin fimmtudaginn 16. október frá kl. 13:00 til 16:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan, sem fer fram í fjórða sinn, mun – eins og áður – fjalla um almannavarnamál á Íslandi. Sérstök áhersla verður lögð á öryggis- og varnarmálahlutverk Almannavarnadeildarinnar.  

Öll þau sem hafa áhuga á almannavarnamálum eru hvött til að sækja ráðstefnuna. Aðgangur er ókeypis, en vegna takmarkaðs sætafjölda er skráning nauðsynleg (þó ekki brýnt að skrá sig strax).  

Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara verða birtar á vef Almannavarnadeildar síðar. Einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar um ráðstefnuna hjá Hjördísi Guðmundsdóttur, samskiptastjóra Almannavarna, í gegnum netfangið hjordis@almannavarnir.is.