Skýrsla af fundi vísindamannaráðs Almannavarna 6. september

06.09. 2014 kl. 12:00 – Bárðarbunga
Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra
Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:
Í eftirlitsflugi í gær var yfirborð Bárðarbungu mælt með radarhæðarmæli flugvélar Ísavia. Mælingarnar sýna stórar breytingar á yfirborði Bárðarbungu. Allt að 15 metra lækkun hefur orðið í miðju öskjunnar og nemur rúmmálsbreytingin um 0,25 km3. Lögun dældarinnar er í samræmi við að botn öskjunnar hafi sigið sem þessu nemur.
Sig af þessari stærðargráðu hefur ekki orðið á Íslandi síðan mælingar á jarðskorpuhreyfingum hófust hérlendis um miðja síðustu öld.
o   Engin merki sjást um eldgos eða aukinn jarðhita í Bárðarbunguöskjunni.
o   Rúmmál sigsvæðis í Bárðarbungu er verulegur hluti af áætluðu heildarrúmmáli kvikugangsins.
o   Sennilegasta skýringin er að þetta sig sé í tengslum við mikla jarðskjálftavirkni undanfarið og kvikustreymi neðanjarðar til norðausturs.
Í eftirlitsfluginu í gær fannst breið og grunn sigdæld í Dyngjujökli 10 km frá jökuljaðri. Önnur dæld 6 km frá sporði Dyngjujökuls sem fylgst hefur verið með undanfarna daga hefur farið dýpkandi og mældist 35 m djúp.
o   Sennilegt er að þessar dældir séu merki um stutt smágos sem orðið hafa undir jöklinum.
·         Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni.
o   Gosvirkni er á tveimur sprungum. Megingosið er á sömu sprungu og verið hefur virk frá upphafi. Auk þess er enn gosvirkni á sprungu sem opnaðist í gærmorgun.
o   Hrauntungan nær nú 10 km til ANA og á tæpan km eftir í Jökulsá  á Fjöllum.
Dregið hefur úr skjálftavirkni á svæðinu síðan í gær. Um 90 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Einn jarðskjálfti 5 að stærð mældist við Bárðarbunguöskjuna kl.  05:40 í morgun. 14 skjálftar hafa orðið stærri en 5 við Bárðarbungu síðan 16. ágúst.
·         Litlar breytingar eru jarðskorpuhreyfingum norðan Vatnajökuls, mældum með GPS, síðan í gær.
·         Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
o   Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og kvika brjótist ekki til yfirborðs á fleiri stöðum.
o   Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
o   Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli aftur og leiði jafnvel til umtalsverðs eldgoss. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
o   Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.
 
Frá Veðurstofu Íslands: Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.
avdlogo09-150x151