Málþingið verður haldið kl. 13.oo – 17.oo, mánudaginn 23. mars í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á
Hótel Sögu.
Tilgangur málþingsins er að miðla upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í
Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.
13.00 – 13.30 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra
13.30 – 13.50 Almennt um efnamengun frá eldgosinu Veðurstofan
13.50 – 14.10 Loftmengun Umhverfisstofnun
14.10 – 14.30 Mengun yfirborðsvatns Jarðvísindastofnun HÍ
14.30 – 14.50 Áhrif á lífríki í ám og vötnum Veiðimálastofnun
14.50 – 15.10 Áhrif á villt dýr og vistkerfi Náttúrufræðistofnun
15.10 – 15.30 Kaffi
15.30 – 15.50 Áhrif á gróður og fóður fyrir búfé Landbúnaðarháskólinn
15.50 – 16.10 Áhrif á búfé Keldur
16.10 – 16.30 Áhrif á skógrækt Skógræktin
16.30 – 17.00 Almennar umræður
Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Bændasamtaka Íslands,
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Hljóðupptökur og glærur vegna ofangreindra erinda og umræðna verða aðgengilegar eftir málþingið
á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, www.anr.is og vef Almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra www.avd.is
Fundarstjóri: Halldór Runólfsson