Vísindamenn flugu yfir gosstöðvarnar í dag með flugvél ÍSAVÍA TF-FMS. Staðfest er að þrír sigkatlar hafa myndast í Dyngjujökli yfir bergganginum sem hefur skriðið frá Bárðarbungu frá 16. ágúst. Sigkatlarnir voru myndaðir með radarmyndavél og er niðurstöðva þeirra mælinga að vænta á morgun.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem starfsmaður almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra tók í ferðinni. Smellið á myndirnar til að sjá þær í fullri stærð.
![Sigketill í Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.](http://avd.is/is/wp-content/uploads/2014/09/IMG_1240-1024x682.jpg)
Sigketill í Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
![Gossprungan sem opnaðist í dag séð frá Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.](http://avd.is/is/wp-content/uploads/2014/09/IMG_1225-1024x682.jpg)
Gossprungan sem opnaðist í dag séð frá Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
![Séð yfir gossprungurnar í Holuhrauni. Dyngjujökull í baksýn. Áin til hægri á myndinni rennur undan jöklinum. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.](http://avd.is/is/wp-content/uploads/2014/09/IMG_1187-1024x682.jpg)
Séð yfir gossprungurnar í Holuhrauni. Dyngjujökull í baksýn. Áin til hægri á myndinni rennur undan jöklinum. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
![Vísindamenn að störfum í TF-FMS. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.](http://avd.is/is/wp-content/uploads/2014/09/IMG_1142-1024x682.jpg)
Vísindamenn að störfum í TF-FMS. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
![Séð frá Bárðarbungu, Kverkfjöll til hægri og gosmökkurinn frá eldgosinu í Holuhrauni til vinstri. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.](http://avd.is/is/wp-content/uploads/2014/09/IMG_1102-1024x682.jpg)
Séð frá Bárðarbungu, Kverkfjöll til hægri og gosmökkurinn frá eldgosinu í Holuhrauni til vinstri. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.