Nýjar myndir frá Holuhrauni

Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun HÍ flugu yfir eldstöðvarnar í Holuhrauni á laugardaginn var, 10.01.2015. Með í för var myndatökumaður frá Stöð 2 og hafa myndir hans nú birst í fréttum stöðvarinnar, hér, og í fjölmiðlum út um allan heim. Myndirnar hér fyrir neðan eru úr þeirri ferð.

Eldgosið í Holuhrauni hefur nú staðið yfir í 136 daga. Hraunframleiðslan er enn mjög mikil og enn streymir brennisteinsdíoxíð (SO2) úr gígnum í miklu magni. Bárðarbunga heldur áfram að skjálfa og askjan að síga. Gosið er því enn mjög öflugt hvernig sem á það er litið.

 

Holuhraun_Jarvis4_20150114

Nýtt hraun rennur úr í Jökulsá Á Fjöllum, 10.01.2015. Mynd Jarðvísindastofnun HÍ.

Holuhraun_Jarvis5_20150114

Hraunáin, 10.01.2015. Mynd Jarðvísindastofnun HÍ.

Holuhraun_Jarvis6_20150114

Gígurinn er nú 400 metra langur, 10.01.2015. Mynd Jarðvísindastofnun HÍ.

Holuhraun_Jarvis7_20150114

Í vinstra horninu á myndinni má sjá að hraunáin er að brjóta sér nýja leið út úr gígnum, 10.01.2015. Mynd Jarðvísindastofnun HÍ.

Holuhraun_Jarvis8_20150114

Hraunið bullar í gígnum,10.01.2015. Mynd Jarðvísindastofnun HÍ.