COVID-19 – Af hættustigi á óvissustig

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa hættustig almannavarna vegna Covid-19 niður á óvissustig.  Óvissustig Almannavarna vegna COVID-19 var fyrst sett á 27. janúar 2020, síðan þá hefur almannavarnarstig Almannavarna verið fimm sinnum á hættustigi og fjórum sinnum á neyðarstigi vegna COVID-19.  

Ástæðan fyrir þessari afléttingu er sú, að staða Covid-19 á Íslandi er nú góð. Daglega greinast nú tæplega eitt hundrað manns opinberlega með Covid-19 þó líklegt sé að fleiri séu að smitast. Einnig er álag á heilbrigðisstofnanir nú til mun minna en áður var en nú liggja níu sjúklingar inni á Landspítala vegna Covid-19 og þar af eru sex með virkt smit en enginn er á gjörgæsludeild.

Þessari góðu stöðu má þakka útbreiddu ónæmi í samfélaginu bæði vegna góðrar þátttöku landsmanna í bólusetningum og vegna útbreiddra smita. Á næstu dögum verða birtar niðurstöður úr rannsókn sóttvarnalæknis og Íslenskrar erfðagreiningar á mótefnamælingum landsmanna sem munu gefa góðar vísbendingar um hversu stór hluti þjóðarinnar hefur raunverulega smitast af Covid-19.

Þó að staða Covid-19 sé nú góð hér á landi þá er sjúkdómurinn enn til staðar víðsvegar í heiminum en nú er talið að einungis rúmlega helmingur jarðarbúa hafi smitast. Á meðan að svo er, þá þurfum við hér á Íslandi að vera á varðbergi gagnvart nýjum afbrigðum veirunnar og einnig þurfum við fylgjast vel með hversu lengi ónæmið sem við höfum nú náð gegn Covid-19 mun endast.