Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum kemur fram að engin virkni er sjáanleg í gossprungu sem opnaðist í gær um klukkan 9:45 suðvestan af fjallinu Þorbirni, norðan við Grindavík. Enn logar þó glóð í nýju hrauni. Að mati vísindamanna flæðir kvika enn inn í kvikuganginn. Svæðið er óstöðugt og varasamt. Talsverð jarðskjálftavirkni mældist í gær á Reykjanesskaga en í gærkvöldi tók að draga úr þeirri virkni en hún heldur þó áfram.
Hægt er að fylgjast með framgangi mála á vef Veðurstofu Íslands.