Af óvissustigi vegna snjóflóða í Neskaupstað

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna snjóflóða í Neskaupstað.  Veðurstofa Íslands hefur einnig aflýst óvissustigi sínu vegna hættu á snjóflóðum og krapaflóðum á Austfjörðum.  

Við taka umfangsmikil verkefni við hreinsun og endurreisn samfélagsins.  Eins og áður hefur komið fram þá er núna þjónustumiðstöð Almannavarna starfrækt í Neskaupstað og verður opin eins lengi og hennar er þörf.  

Verkefni þjónustumiðstöðvar felast í stuðningi við íbúa og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum ofanflóða og ofanflóðahættu á Austfjörðum. Stuðningurinn felur meðal annars í sér upplýsingagjöf og fræðslu af ýmsu tagi og Rauði krossinn mun halda áfram að bjóða upp á sálfélagslegan stuðning í þjónustumiðstöðinni.