Aflýsing á óvissustigi – hættustig áfram á Norðurlandi

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna aftakaveðurs, sem lýst var yfir þann 9. desember. Ákvörðunin er tekin í samráði við lögreglustjóra landsins.   

Hættustigi almannavarna fyrir Norðurland vestra, Norðurland eystra og Strandir er ekki aflýst að svo stöddu þar sem enn er verið að glíma við afleiðingar veðursins. Aðgerðastjórnir á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra eru enn að störfum og  samhæfa aðgerðir og sinna aðstoðarbeiðnum.  

Allt kapp er lagt á að tryggja öryggi og heilsu íbúa og unnið er hörðum höndum við að koma  fjarskiptum, samgöngum og rafmagni í samt lag.  Rafmagni hefur verið komið á með bráðabrigðaviðgerðum  og víða er keyrt á varaafli. Viðgerðir geta staðið í nokkra daga. Afhendingaröryggi er víða ótryggt. Vetrarfærð er á vegum.  Ljóst er að mikið eignatjón hefur fylgt veðrinu, sem enn á eftir að meta.