Aflýsing á óvissustigi vegna austan óveðurs 14. febrúar

Ríkislögreglustjóri í samráði við alla lögreglustjóra landsins aflýsir hér með óvissustigi almannavarna vegna óveðurs sem spáð var föstudaginn 14. febrúar.  Óveðrið hafði víðtæk áhrif á landinu þar sem samgöngur og almennur rekstur fór úr skorðum. 

Áfram eru þó vetraraðstæður á landinu, gular viðvaranir vegna veðurs og óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum er enn í gildi.  Þeir sem hyggja á ferðalög á milli landshluta eru hvattir til að leita nýjustu upplýsinga um veður og færð á www.vedur.is og www.vegagerdin.is.