Aflýsing óvissustigs vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli

Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur ákveðið að afturkalla virkjun á Viðbragðsáætlun vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli á óvissustigi.

Eftir kröftuga skjálftahrinu sem varð innan Kötluöskjunnar í Mýrdalsjökli á tímabilinu 28. september- 2. október (yfir 500 skjálftar)  hefur dregið verulega úr skjálftavirkni á þeim slóðum.  Önnur minni skjálftahrina varð á tímabilinu 5. – 8. október (130 skjálftar)  en frá því hefur verið lítil virkni á þeim slóðum.  Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli er þó mun meiri í haust en hefur verið síðustu ár og áfram verður fylgst vel með þróun mála.