Áfram hættustig þrátt fyrir minni skriðuhættu. Óvissustig á Tröllaskaga aflétt.

Samkvæmt mati sérfræðinga verðurstofu hefur verulega dregið úr skriðuhættu á syðra svæði rýmingarinnar í Kinn og er ástandið þar orðið skaplegt. Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á syðra svæðinu sem nær frá og með Ófeigsstöðum og Rangá í norðri að Hrafnsstöðum í suðri. Vatn í hlíðum hefur minnkað mikið síðan á sunnudag þrátt fyrir rigninguna í gær. Þá hafa engar skriður fallið á þessu svæði í hrinunni og talið er að skriðuhætta sé orðin lítil.

Á ytra svæðinu þar sem bæirnir norðan við Ófeigsstaði og Rangá standa í Útkinn hefur ástandið líka lagast. Ekki hefur frést af neinum nýjum skriðuföllum í rúman sólarhring. Lækir eru enn í skriðusárum en þeir hafa minnkað. Skriðuhætta er talin hafa minnkað mikið en þó er ástæða til að fylgjast með stöðunni fram eftir degi áður en rýmingu verður aflétt á nyrðra svæðinu.

Hættustig Almannavarna er áfram í gildi á svæðinu. Óvissustigi á Tröllaskaga er hér með aflétt.  

Vegurinn um Kinn hefur verið opnaður fyrir almennri umferð og stefnir vegagerðin að því að ryðja aur af vegi í Útkinn í dag. Síðdegis verður haldinn stöðufundur með Veðurstofu Íslands og kannað hvort öruggt verði að aflétta rýmingu í Útkinn.

Veðurspáin gerir ráð fyrir austanhvassviðri á fimmtudag og þá gæti rignt hressilega, sérstaklega á nyrðra svæðinu. Viðbragðsaðilar munu áfram fylgjast með veðurspánni og taka afstöðu til þess hvaða áhrif hún hefur á skriðuhættu.