Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur í dag út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. Fyrstu eintök bæklingsins voru afhent ráðherrum að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Markmið bæklingsins er að veita almenningi hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, veður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslegar áskoranir. Á undanförnum árum hafa eldgos, jarðskjálftar, snjóflóð, óveður og aðrir atburðir minnt á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast. Jafnframt hefur aukin áhersla verið lögð á viðbúnað almennings víða um Evrópu og á Norðurlöndum.
Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is og markar tímamót í miðlun upplýsinga um viðbúnað til almennings. Hann verður jafnframt aðgengilegur á www.verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku, auk útgáfu á auðlesnu máli og á táknmáli. Frá miðvikudegi til sunnudags verður prentaðri útgáfu bæklingsins dreift á völdum stöðum um land allt með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar samhliða sölu Neyðarkallsins. Markmiðið er að tryggja að sem flestir hafi aðgang að upplýsingum sem geta skipt sköpum þegar á reynir.
Áður fyrr voru upplýsingar um öryggi og samfélagslega innviði fastur hluti af símaskránni sem til var á flestum heimilum landsins. Í dag hefur samfélagið, tæknin og upplýsingamiðlun tekið miklum breytingum. Líkt og önnur Norðurlönd leggur Ísland nú aukna áherslu á að almenningur hafi greiðan aðgang að hagnýtum og áreiðanlegum upplýsingum um viðbúnað og neyðarviðbrögð. Bæklingurinn Verum viðbúin er liður í því.
Í bæklingnum er meðal annars fjallað um hvernig heimili geta undirbúið sig fyrir truflanir á daglegu lífi, hvar hægt er að nálgast áreiðanlegar upplýsingar og hvaða búnaður getur verið gagnlegur á heimilinu. Þar er meðal annars bent á útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, hleðslubanka, vasaljós, lyf og aðrar nauðsynjar sem geta komið að góðum notum þegar á reynir.
„Viðbúnaður er ekki einungis verkefni stjórnvalda, heldur okkar allra. Þegar einstaklingar og fjölskyldur gera einfaldar ráðstafanir til að búa sig undir mögulegar truflanir eykst öryggi samfélagsins í heild. Markmiðið með Verum viðbúin er að gera fólki auðveldara að vita hvað skiptir máli og hvar það getur nálgast áreiðanlegar upplýsingar ef óvæntar aðstæður skapast,“ segir Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Bæklingurinn er unninn í samstarfi fjölmargra sérfræðinga, ráðuneyti, stofnanir og samstarfsaðila undir forystu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
