Almannavarnastig fært af neyðarstigi niður á hættustig vegna COVID-19

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnarlækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna COVID-19 frá neyðarstigi niður á hættustig.

Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir 24. mars s.l. þegar ný reglugerð tók gildi og tíu manna fjöldatakmörkun varð meginreglan, vegna hópsýkinga innanlands.  

Nú gengur vel að ná niður COVID-19 smitum í samfélaginu og því fer almannavarnarstigið niður á hættustig, þessi aðgerð hefur í raun ekki áhrif daglegt líf almennings. 

Sóttvarnalæknir og stýrihópur um verkefni sem snýr að COVID-19, mun áfram fylgjast með þróun faraldursins og taka ákvarðanir miðað við framvindu hans.

Frá því að neyðarstigi var fyrst lýst yfir, 6. mars 2020, hafa 6144 smit verið staðfest, 48.528 einstaklingar lokið sóttkví og 622.370 sýni verið tekin innanlands og á landamærum. Tuttugu og níu einstaklingar hafa látist vegna COVID-19.

Í dag eru 62.276 íbúar á Íslandi fullbólusettir eða 21.1% þjóðarinnar (16 ára og eldri).

Frekari upplýsingar um þróun faraldursins og bólusetningar má finna á www.covid.is – Þar má einnig finna upplýsingar um þær sóttvarnaaðgerðir sem eru í gildi sem og leiðbeiningar.