Björgunaraðgerð vegna búfénaðar og húsdýra í Grindavík í viðbragðsstöðu

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að ekki sé unnt að bjarga búfénaði og húsdýrum af skilgreindu hættusvæði vegna jarðhræringanna á Reykjanesi, að svo stöddu.
Svæðið er sem stendur lokað öllum mannaferðum, þar til annað verður ákveðið.

Viðbragðsaðilar eru hins vegar í viðbragðsstöðu og reiðubúnir til að ráðast í slíka aðgerð um leið ef aðstæður breytast og tækifæri gefst til.